Hallóóó hallóóó
Vá ég er ekkert búin að vera að
blogga hérna
Æji það lagast!!!
En hvað segiðii?? Heyrðu það var svoo
geeeðveikt á Costa sko... Vorum réttara sagt á Marbella á hóteli
sem heitir Barceló og var svo gegggjað flott!! En ég tók smá af
myndum og hef ákveðið að setja smá í bloggið sjálft og svo líka í
flokkinn lúx... en þetta tekur bara svo sorglega langann tíma...
!!
en maður verður að láta það á sig fá.
En já Við vorum sem sagt þarna á spáni vegna þess
að Biggi var að keppa í golfi og Beta ákvað bara að við ´færum bara
á spán með... og já allt í lagi með það segi ég bara,,, meina
spán.. hver segir nei við því???
En við fórum 2var á golfvöllin og fengum frítt að
borða þarna á sér svæðinu þar sem golfarar og gestir mega aðeins
vera... voðalega fínt allt saman. Og bara þvílíkt útsýni líka... Ef
ég á að segja sannleikann þá bara veit ég ekkert um hvað Golf snýst
um svó ég bara jájájá... svona er þetta víst... ég veit þetta er
íþrótt og mjög fín einnig líka 

Við eyddum alveg svakalega góðum tíma í að vera
við sundlaugina í sólbaði og ég synti smá líka... ekkert stór laug
en ég náði að synda smá og svo leika með krökkunum
Og hehe svo má
nú ekki gleyma , ég náði bara góðum lit þarna því maður var alveg
frá morgunmat... sem sagt hálf 10 til c.a. eitt kannksi beint í
hádegis mat og svo beint aftur. Fórum 1 dag á ströndina réttara
sagt kannksi 10 mín vegna mikils sandfoks sem var ekkert
skemmtilegt svo það var farið oog já legið við sundlaugina
hehehe

Einn daginn fórum við á röltið um Puerto Banús og
váááááááááááááá er eina orðið sem kemst í hugann á mér skal ég
segja ykkur... Þetta er sem sagt aðal staðurinn sem ríka fólkið fer
í frí... bara Geeeeðveikar snekkjur og BÍLARNIR!! úfffff
sko..!! haaaaaaahhh svo má nú sko EKKI gleyma búðunum ...
Gucci, Versace, Dior, Burberry, Dolce&Gabbana og svo lengi
sé talið... og náttulega allt alvöru..

En við vorum þarna sem sagt frá Miðvikudegi til
Sunnudags og fékk maður sko góðann skammt af sól og fíneríi.... En
svo þegar heim var snúið var það bara rigning, þrumur og
eldingar... sem var bara fínt segi ég bara... samt alveg 18 stiga
hiti 
Það sem eg er búin að vera að gera síðan ég kom
heim frá Costa er bara eigilega að slaka á... en samt auðvitað að
gera verkin mín hérna og passa auðvitað líka
Beta kom einmitt
frá London núna bara í fyrra dag og var þar frá miðvikudegi
Var
í svona fínni stelpu ferð þar með vinkonum sínum
Svona sem annað er í fréttum er að ég fór út á
lífið núna á miðvikudaginn með Berglindi og Tótu og við fórum á
Viking sem er mjöööög vinsæll meðal þeirra stelpnanna og er þetta
bara mjöög fínn staður... Ég er búin að finna mér uppáhalds áfenga
drykkinn og það er sko Vodka í Redbull.. naaamm!!! og svo er
það náttulega Carlsberginn
Klikkar ekki sá... Í hópinn bættist
svo Lilja sem var að fara daginn ettir og svo Sigga, jónína og
María og svo var hún Hrefna að vinna á Viking
En svo var
ferðinn heitið á Muko Muko og sko váááá Dj-inn var alveg að spila
mína tónlist og ég var alveg þrusu ánægð sko!! Svo var bara farið
heim að lúlla um 4 leytið 
Svo núna á föstudaginn voru stjúpmamma og
pabbi hans Bigga að koma í heimsókn og þau
eru bara rosalega hress og fín
Ég vil nú ekki hafa þetta neitt mikið lengra
sko... nema að mig langar að "monta" mig smá , hérna á
Miðvikudaginn þá settist ég niður í hádegismat með Inga og Bigga og
Biggi byrjar að segja bara ég og Beta vorum að ræða það hversu
ánægð við erum með þig og hvað þú ert að standa þig vel
Þannig þau eru að bjóða mér þangað sem mig langar að fara ,
en það er ekki ákveðið enn hvert ég skal fara en ég er allavega í
fríi núna frá föstudeginum 25.maí til 5 júní.. sem er bara svo
geðveikur tími
smá frí þó það sé alveg æðislegt að vera hérna...
ég er svoooo ánægð og heppin með fjölskyldu að ég á ekki til orð
bara 

Ég blogga kannksi bara betur um það þegar ég veit
hvert ferðinni skal heitið ég var að hugsa París... mjööög góður
staður , Skíði í Austurríki hljómar einnig mjöög vel, en já eins og
ég segi þá kemur þetta allt í ljós
En ég fann alveg
afskaplega fyrir því um daginn hversu sárt ég sakna allra heima og
alveg sérstaklega henni ömmu minni , sakna hennar alveg ooof mikið
En þetta styttist allt saman bara um einn og hálfur mánuður í
mig svo er ég komin heim
Alveg svakalega fljótt að
líða...
En ég ætla að segja þetta gott í bili
og
ÉG vil gjarnan fá kvitt fyrir komuna hérna í
Komment , það myndi veita mér mikillar
ánægju...jájájájájá

Addi (Edí, þýðir bara bess
)
Allý
Ps3.... myndir ekki alveg komnar inn á en
koma innan tíðar.. pottþétt í kvöld
svo þið verðið bara að
fylgjast með